Smelltu hér ef þú getur ekki skoðað póstinn.
Merki Útflutningsráðs
6. tbl.
Samkeppnishæfni Íslands fyrir fjármálastarfsemi

Morgunverðarfundur á Grand hótel – fimmtudaginn 5. júní kl 08:15 – 10:00

Fjárfestingarstofan býður til morgunverðarfundar á Grand hótel þar sem kynntar verða niðurstöður samkeppnisgreiningar á Íslandi fyrir ákveðin form fjármálafyrirtækja. Meðal þeirra sem tala á fundinum er Laurens Narraina, skattasérfræðingur hjá PricewaterhouseCoopers í Belgíu.

Nánar >>
Stuðningur við „einstök“ fyrirtæki
Útflutningsráð mun á árinu taka þátt í sýningarkostnaði hjá fyrirtækjum sem eru með mjög sérhæfða vöru eða starfa á svo þröngu sviði að þau eigi ekki erindi inn á almenna þjóðarbása Útflutningsráðs. Hér með er auglýst eftir aðilum sem gætu nýtt sér þessa þjónustu. 
Nánar >>
Fundir með viðskiptafulltrúum

Fimmtudaginn 12. júní mun viðskiptafulltrúi í sendiráði Íslands í Kaupmannanhöfn, Rósa Viðarsdóttir, hitta þá fulltrúa fyrirtækja sem þess óska og vilja leita markaðsráðgjafar á umdæmissvæðum sendiráðsins. Þeir sem hafa hug á að skrá sig í viðtölin eru hvattir til að gera það sem fyrst í síma 511 4000 eða utflutningsrad@utflutningsrad.is .

 

Nánar >>
Eru Danir og Íslendingar líkir eða er stór munur þar á?

Morgunverðarfundur á Grand hótel – fimmtudaginn 12. júní kl 08:15 – 09:30 

Jens Albinus, sem við Íslendingar þekkjum hve best fyrir að leika lögreglumanninn Hallgrím í dönsku þáttunum Örninn, mun sækja landið heim og leyfa okkur að kynnast því betur hver er í raun munurinn á okkur og Dönum þegar kemur að samskiptum.  Þetta verður líflegur fyrirlestur á léttu nótunum þar sem skoðaðar eru hinar ýmsu hliðar á því hvernig Danir eru í raun öðruvísi en við. Þetta efni á erindi til allra þeirra sem vilja efla og bæta tengsl sín við Dani eða dönsk fyrirtæki því oft eru það minnstu atriðin sem mönnum yfirsést þegar kemur að samskiptum við erlenda aðila. 

Nánar >>
Könnunarleiðangur til Brasilíu

Útflutningsráð í samvinnu við viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins hefur að undanförnu skipulagt ferð til Brasilíu sem fara átti núna í júní. Ákveðið hefur verið að fresta ferðinni  fram á haustið þar sem fyrirhuguð tímasetning hentaði áhugasömum fyrirtækjum ekki nægilega vel.

Nánar >>
Tækifæri Íslendinga í Mið-Austurlöndum
Ráðstefna um stjórnmál og viðskipti í Mið-Austurlöndum og tækifæri Íslendinga þar að lútandi verður haldin í Háskólanum á Bifröst föstudaginn 6. júní næstkomandi. Aðalfyrirlesari er Jerry M. Rosenberg, prófessor við Rutgers University.

Dagskrá ráðstefnunnar hefst klukkan 14.00 og lýkur með pallborðsumræðum undir stjórn Jóns Ólafssonar, prófessors klukkan 17.00.
Nánar >>
Líflegar umræður um viðskiptatækifæri í Gínea-Bissá
Mjög góð mæting var á kynningarfund Útflutningsráðs og viðskiptaráðuneytisins um viðskiptatækifæri í smáríkinu Gínea-Bissá sem haldinn var sl. föstudag. Líflegar umræður spunnust einnig eftir framsöguerindi og var greinilegt að marga fýsti að vita meira um það helsta sem landið hefur upp á að bjóða.
Nánar >>
Viðskipta- og fjárfestingakynning í Mílanó 26. maí sl.
Hátt í hundrað manns sátu íslenska viðskipta- og fjárfestingakynningu í ráðhúsi Mílanóborgar, Palazzo Marino, hinn 26. maí sl., sem skipulögð var af sendiráði Íslands í Róm og Íslensk-ítalska viðskiptaráðinu (IICC) í samvinnu við ýmsar stofnanir og fyrirtæki, þ. m. t. Mílanóborg og viðskiptaráðið í Mílanó.
Nánar >>
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér.