Smelltu hér ef þú getur ekki skoðað póstinn.
Merki Útflutningsráðs
5. tbl.
Baugur Group hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands

Verðlaunin afhent í 20. sinn og af því tilefni hljóta þrír einstaklingar heiðursviðurkenningu
Miðvikudaginn 23. apríl, veitti forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrirtækinu Baugur Group Útflutningsverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Það var Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður sem veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins. 

 

Þetta er í 20. sinn sem verðlaunin eru veitt og af því tilefni voru veittar heiðursviðurkenningar til þriggja einstaklinga. Þeir eru Einar Benediktsson fyrrum sendiherra, dr. Rögnvaldur Ólafsson dósent og Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður.


 

Nánar >>
Tækifæri í Toronto

Útflutningsráð í samvinnu við skrifstofu Ferðamálastofu í Norður-Ameríku skipuleggur viðskiptasendinefnd til Toronto. Sérstök áhersla er á ferðaþjónustu.
Skipulag ferðarinnar er að farið er til Toronto í beinu flugi Icelandair að kvöldi mánudagsins 2. júní. Þriðjudaginn 3. júní verða skipulagðir fundir með ferðaþjónustufyrirtækjum, ráðstefnuskipuleggjendum og fulltrúum fjölmiðla. Boðið verður til sérstakrar Íslandskynningar í lok dagsins. Miðvikudaginn 4. júní verða framhaldsfundir og vetvangsheimsóknir og flogið beint til Íslands að kvöldi og komið til baka á fimmtudagsmorgni.
Nánar >>
Viðskiptakynning í Mílanó 26. maí
Sendiráð Íslands í Róm og Íslensk-ítalska verslunarráðið (IICC) halda íslenska viðskipta- og fjárfestingarkynningu í Palazzo Marino í Mílanó hinn 26. maí 2008, í samvinnu við ýmsar stofnanir og fyrirtæki, þ. m. t. Mílanóborg og viðskiptaráðið í Mílanó. Dagsetningin er valin í tengslum við fyrsta beina flug Icelandair til Mílanó í ár hinn 24. maí. Sérstök áhersla verður á banka- og fjármálaþjónustu og nýtingu umhverfisvænnar orku á Íslandi.
Nánar >>
Showroom Reykjavík
Fatahönnunarfélag Íslands stendur fyrir sýningu í Portinu í Hafnarhúsinu dagana 25. og 26. apríl undir nafninu SHOWROOM REYKJAVIK. Fyrirmyndin að sýningunni eru erlendar sölusýningar sem fataframleiðslufyrirtæki taka þátt í til að koma vöru sinni á markað. 
Nánar >>
Stefnir hugurinn til Frakklands?

Viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands í Frakklandi verður með kynningu og viðtalstíma í Reykjavík 28. apríl.
   Nýir straumar í frönsku viðskiptalífi
        – Auknir möguleikar fyrirtækja
   Aðstoð sendiráðsins við fyrirtæki
Unnur Orradóttir Ramette viðskiptafulltrúi verður með kynningu í Borgartúni 35, kl. 8:45-9:30

Nánar >>
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér.