Smelltu hér ef þú getur ekki skoðað póstinn.
Merki Útflutningsráðs
7. tbl. 2008
Sumarleyfi
Starfsfólk Útflutningsráðs verður í sumarleyfi dagana 14. júlí til 5. ágúst.
Líkt og undanfarin ár verður skrifstofan lokuð í þrjár vikur.
Nánar >>
Námskeið í sýningarþátttöku
Útflutningsráð stendur fyrir námskeiði í sýningarþátttöku miðvikudaginn 3. september nk. Leiðbeinandi verður Þjóðverjinn Hans-Jörg Klecha sem hefur margra áratuga reynslu sem faglegur ráðunautur við uppsetningu, framkvæmd og þátttöku á alþjóðlegum vörusýningum.
Nánar >>
ÚH-19 hefst í október
- Átta til tíu fyrirtæki verða valin til þátttöku
Fræðsluverkefnið Útflutningsaukning og hagvöxtur, ÚH, verður haldið í nítjánda sinn í haust. Það er ætlað fyrirtækjum sem hafa áhuga á að hefja útflutning, auka útflutning eða treysta tök sín á markaðssetningu erlendis.
Nánar >>
HH2 – frá hugmynd til markaðar hefst á Norðurlandi í haust
Útflutningsráð býður ferðaþjónustufyrirtækjum á Norðurlandi þátttöku í verkefninu HH2 – frá hugmynd til markaðar sem er sjálfstætt framhald hins árangursríka og vinsæla verkefnis Hagvöxtur á heimaslóð (HH).

Verkefnið er sniðið að þörfum fyrirtækja og hagsmunaðila í ferðaþjónustu. Mikil áhersla er lögð á virka þátttöku í verkefninu.
Nánar >>
Viðskiptasendinefndir
Tilgangur viðskiptasendinefnda er að koma auga á og greina viðskiptatækifæri, opna dyr inn á markaði og koma á eða efla tengsl við þarlend fyrirtæki. Næstu viðskiptasendinefndir eru fyrirhugaðar í haust:

Kasakstan 22.-25. september
Þýskaland 29.-30. október
í tilefni af opinberri heimsókn forseta Íslands til Þýskalands
Jórdanía 10.-13. nóvember
Nánar >>
Sjávarútvegssýningarnar í Brussel 2009
Hafin er skipulagning á sjávarútvegssýningunum tveimur, European Seafood Exposition og Seafood Processing Europe sem haldnar verða í Brussel 28.-30. apríl á næsta ári.
Nánar >>
Útherji - fréttablað
Nýtt tölublað Útherja er komið út og er þar að finna viðtöl, greinar og ýmsan fróðleik. Hafðu samband til að fá blaðið sent.
Nánar >>
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér.