Smelltu hér ef þú getur ekki skoðað póstinn.
Merki Útflutningsráðs
3.tbl.2008
Ársfundur 2008

Ársfundur Útflutningsráðs verður haldinn mánudaginn 7. apríl kl. 15-17 á Grand hótel Reykjavík. Yfirskrift fundarins er Landvinningar íslenskrar verslunar .

Meðal ræðumanna á ársfundinum er Lars Egenäs, einn eigenda Deloitte í Svíþjóð en þar hefur hann starfað í nær 30 ár. Hann er mikilsmetinn sérfræðingur í endurskoðun og áhættustýringu. Lars er aðalhöfundur skýrslunnar Nordic Powers of Retailing 2007.

Nánar >>
Viðskiptasendinefnd í Mexíkó

Latibær slær í gegn
Viðskiptasendinefndinni í fylgd med forseta Íslands í Mexíkó hefur verið afar vel tekið, en flest fyrirtækin komu til Mexíkóborgar á mánudag og taka þátt í dagskrá og viðskipafundum út vikuna.

Fulltrúar fyrirtækjanna hafa tekið þátt í ýmsum viðburðum þessa viku.

Nánar >>
Sendinefnd til Kaliningrad
Útflutningsráð skipuleggur í samvinnu við sendiráð Íslands í Moskvu viðskiptasendinefnd til Kaliningrad í Rússlandi dagana 7.-10. apríl. Sendinefndin er opin fyrirtækjum úr öllum greinum þótt sérstaklega séu mikil tækifæri fyrir aðila í sjávarútvegi og fiskvinnslutækni. 
Nánar >>
Matvælasýningin SIAL 2008
Útflutningsráð Íslands vill kanna áhuga íslenskra fyrirtækja á þátttöku í SIAL matvælasýningunni sem haldin verður í París 19.-23. október nk. SIAL er haldin annað hvert ár á móti Anuga-matvælasýningunni í Köln í Þýskalandi. SIAL er gríðarlega stór sýning þar sem 140.000 gestir frá 100 löndum og 5.500 sýnendur tóku þátt árið 2006.
Nánar >>
HH2 – að hefjast á Vestfjörðum
HH2 - frá hugmynd til markaðar hefst á Vestfjörðum dagana 9.-10. apríl. Verkefnið er sjálfstætt framhald hins árangursríka og vinsæla verkefnis Hagvöxtur á heimaslóð (HH) sem er sniðið að þörfum fyrirtækja og hagsmunaðila í ferðaþjónustu. Frestur til að skrá þátttöku í verkefnið rennur út miðvikudaginn 19. mars 2008.
Nánar >>
ORF Líftækni hlaut Nýsköpunarverðlaunin 2008

Nýsköpunarþing Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs var haldið 28. febrúar á Grand hótel undir yfirskriftinni Notendastýrð nýsköpun. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur gengið til liðs við Rannís og Útflutningsráð með Nýsköpunarþingið og verðlaunin.

Nánar >>
Margt á döfinni hjá útflutningsskrifstofu tónlistar
Iceland Music Export (IMX) stendur fyrir blaðamannaferð á Aldrei fór ég suður. Yfir 20 fjölmiðlafólk frá sumum af stærstu miðlum Evrópu verða á Ísafirði yfir páskana. Verkefnið er framkvæmt í samvinnu við Ferðamálastofu, Iceland Naturally og Icelandair. 

IMX stendur fyrir kynningarferð á Music Messe sem fram fer í Frankfurt í þessari viku en þar verður kannaður markaður fyrir nótnasölu á íslenskum tónverkum. 

Á döfinni er einnig þátttaka í hátíðum á borð við Great Escape sem fram fer í Bretlandi í maí og Spot sem fram fer í Danmörku í byrjun júní en IMX kynnir og styður þá íslensku tónlistarmenn sem þar koma fram. 
Nánar >>
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér.