Smelltu hér ef þú getur ekki skoðað póstinn.
Merki Útflutningsráðs
9. tbl.
Nýr dagur - ný hugsun
Tveir þekktir erlendir fyrirlesarar, Adjiedj Bakas, framtíðarrýnir og forstjóri Trendwatcher, og Claus Möller, stjórnendaráðgjafi og stofnandi Time Manager International, munu horfa til framtíðar á tækifæri þjóðar á tímamótum, á ráðstefnu Útflutningsráðs mánudaginn 1. desember – fullveldisdaginn.
Nánar >>
Hagvöxtur á heimaslóð - skráningu að ljúka
Skráningu fer að ljúka í verkefnið Hagvöxtur á heimaslóð (HH) sem er haldið fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og hagsmunaaðila á höfuðborgarsvæðinu. Áhugasamir eru því hvattir til að skrá sig sem fyrst. 
Nánar >>
Sýningar 2009 - Rafræn könnun á áhuga fyrirtækja
Þegar kemur að undirbúningi og skipulagningu Útflutningsráðs vegna þátttöku í sýningum er mikilvægt að fá vitneskju um hvar áhugi fyrirtækja liggur. Starfsmenn sýningasviðs munu á næstu dögum senda út rafræna könnun um sýningar 2009 sem taldar eru geta hentað til sameiginlegrar þátttöku fyrirtækja, undir hatti Útflutningsráðs. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að íslensk fyrirtæki haldi merkjum sínum á lofti, standi saman og séu sýnileg á erlendri grundu.
Nánar >>
Fundaröð í Eystrasaltslöndunum og Finnlandi 12.-15. janúar 2009
Útflutningsráð Íslands gengst fyrir fundaröð íslenskra fyrirtækja í Eystrasaltslöndunum og Finnlandi í janúar 2009.

· Vilníus, Litháen 12. janúar 
· Ríga, Lettlandi 13. janúar 
· Tallinn, Eistlandi 14. janúar 
· Helsinki, Finnlandi 15. janúar
Nánar >>
Fullt á námskeið um áætlanagerð

Um 60 manns mættu á námskeið Útflutningsráðs og Samtaka ferðaþjónustunnar um áætlanagerð og verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu sem haldið var á Grand Hótel Reykjavík sl. þriðjudag.
Nánar >>
Stefnumót - Ertu með viðskiptahugmynd?
Viltu deila þekkingu þinni til að rækta nýjan sprota?
Viltu stofna fyrirtæki en vantar viðskiptahugmynd?
Ertu með viðskiptahugmynd en vantar liðsstyrk?
Nánar >>
Íslenski hesturinn ávallt vinsæll
Útflutningsráð Íslands stóð fyrir sameiginlegum sýningarbás á hinni árlegu hestasýningu Equine Affair, sem haldin var í Springfield Massachusetts dagana 13.-16. nóvember sl. Þetta er í ellefta sinn sem þessi sýning er haldin en um er ræða stærstu fræðslusýningu um hesta um gjörvöll Bandaríkin.
Nánar >>
Nýtt tölublað Útherja
Fréttablað Útflutningsráðs er nýkomið út og hefur verið dreift til áskrifenda. Hafðu samband til að skrá þig á póstlista.
Nánar >>
Tímarit á ensku - Issues and Images
Nýtt tölublað er komið út af tímritinu Issues and Images.
Í þessu tölublaði er fjallað um Ísland sem ódýran áfangastað og hvernig ferðamenn geta nýtt sér veikingu krónunnar sem best, ævintýralega ferð um Snæfellsjökulsþjóðgarð, Steingrím J. Sigfússon, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, og fyrirtækið Eff2, sem hannar tækniúrlausnir fyrir lögregluna í baráttunni gegn barnaklámi. 
Nánar >>
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér.