Í tilefni af heimsókn utanríkisráðherra til Barbados í Karíbahafi í lok marsmánaðar skipuleggur Útflutningsráð Íslands viðskiptasendinefnd til eyjarinnar.
Ákveðið hefur verið að starfsmaður Útflutningsráðs verði staðsettur á svæðinu í nokkra mánuði og muni aðstoða fyrirtæki við að fylgja eftir þeim samningum sem nást og viðhalda tengslum.
Markmið ferðar ráðherra er m.a. að eiga viðræður við ráðamenn Karíbahafsríkja um samstarf og þróunarsamvinnu Íslands á svæðinu. Til viðræðna verður boðið fulltrúum frá 16 ríkjum og áhersla lögð á þátttöku þeirra sem hafa með sjávarútvegs-, orku- eða jafnréttismál að gera.
Haldin verður ráðstefna þann 26. mars þar sem styrkleikar Íslands á sviði sjávarútvegs og orkuvinnslu verða kynntir fulltrúum stjórnvalda Karíbahafsríkja. Dagana 26. og 27. mars er boðið upp á skipulagða fundi við fyrirtæki á svæðinu.
Áhugasamir hafi samband við Þorleif Þór Jónsson
thorleifur@utflutningsrad.is
eða í síma 511 4000 eigi síðar en fyrir lok febrúarmánaðar.
|