Smelltu hér ef þú getur ekki skoðað póstinn.
Merki Útflutningsráðs
Viðskiptasendinefndir – ágústfréttir 2006
Áhugasamir um einstakar viðskiptasendinefndir eru eindregið hvattir til að smella hér, haka síðan í viðeigandi reit(i) og skrá nafn, síma og tölvupóst til að lýsa yfir áhuga á þátttöku í viðskiptasendinefnd eða nefndum. Tekið er fram að skráningin er yfirlýsing um áhuga og er ekki bindandi. Þeir sem skrá sig fá sendar nýjar upplýsingar um viðkomandi sendinefndir um leið og þær liggja fyrir.

Vladivostok, Rússland – 21.-27. ágúst 2006
Á annan tug íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegi og tengdum atvinnugreinum taka þátt í fyrstu viðskiptasendinefnd haustsins í næstu viku þegar haldið verður til austurstrandar Rússlands, nánar tiltekið Vladivostok.
Nánar >>
Petropavlovsk, Rússland – Aflýst
Hætt hefur verið fyrirhugaða ferð til Petropavlovsk á Kamchatkaskaganum vegna dræms áhuga fyrirtækja. Mögulegt er farið verði með viðskiptasendinefnd til Petropavlovsk síðar en ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum.

Jóhannesarborg, S-Afríka – 19. september 2006
Eitt íslenskt fyrirtæki hefur þegar skráð þátttöku á kynningarfund fyrir fyrirtæki á Norðurlöndum um viðskiptatækifæri og möguleg samstarfsverkefni í S-Afríku í tengslum við lokakeppni HM í knattspyrnu sem haldin verður þar í landi árið 2010.
Nánar >>
Leeds, Bretland – 2.-5. október 2006
Útflutningsráð tekur þátt í bresk-íslenskri viðskiptaráðstefnu sem haldin verður í Leeds í byrjun október.
Nánar >>
San Francisco, Bandaríkin – 7.-11. október 2006
Hópur fyrirtækja hefur þegar staðfest þátttöku í viðskiptasendinefnd Útflutningsráðs til San Francisco í byrjun október.
Nánar >>
Október/nóvember 2006, Madrid/Barcelona, Spánn
Endanlegar dagsetningar fyrirhugaðrar viðskiptasendinefndar til Spánar í tengslum við opinbera heimsókn forsætisráðherra, Geirs H. Haarde, liggja enn ekki fyrir en sem fyrr er gert ráð fyrir að farið verði í október eða byrjun nóvember.
Nánar >>
Nóvember 2006, Kiev og Lviv, Úkraína
Undirbúningur fyrir viðskiptasendinefnd til Úkraínu hefur staðið yfir í nokkurn tíma. Ráðgert er að ferðin verði farin fyrri hluta nóvember en beðið er eftir staðfestingu heimamanna. Farið verður til höfuðborgarinnar Kiev og þaðan til Lviv þar sem íslenskir fjárfestar undir forystu MP Fjárfestingabanka festu nýverið kaup á viðskiptabankanum Bank Lviv.
Nánar >>
Haust 2006. Svartfjallaland
Verið er að kanna áhuga fyrirtækja á þátttöku í viðskiptasendinefnd til Svartfjallalands í haust. Áhugasamir eru beðnir að skrá sig sem fyrst hér eða senda tölvupóst á gudjon@utflutningsrad.is.

Viðskiptasendinefndir 2007
Fyrri hluta september verður send út árleg könnun til íslenskra útflutningsfyrirtækja vegna viðskiptasendinefnda árið 2007. Þeir sem vilja hafa áhrif á hvaða lönd og markaðir verða í könnuninni geta sent tölvupóst með ábendingum og rökstuðningi á gudjon@utflutningsrad.is.
Allar nánari upplýsingar um viðskiptasendinefndir Útflutningsráðs veita Guðjón Svansson, forstöðumaður, gudjon@utflutningsrad.is og Theodór Bjarnason, verkefnisstjóri, theodor@utflutningsrad.is.
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér.