| Smelltu hér ef þú getur ekki skoðað póstinn. | |
![]() | ![]() |
| 1. tbl. 2008 | |
| Írskir fiskkaupendur í heimsókn | |
| Dagana 13.-17. janúar mun ríflega tuttugu manna hópur frá fjórtán fyrirtækjum á Írlandi dvelja hér á Íslandi. Í hópi írsku fyrirtækjanna eru framleiðendur, heildsalar, smásalar og dreifingaraðilar á frosnum og ferskum fiski og sjávarafurðum á Írlandi. Írarnir koma hingað í þeim tilgangi að koma á viðskiptasamböndum við íslenska framleiðendur og seljendur fisks og sjávarafurða. | |
| Nánar >> | |
| HH á Suðurnesjum hefst í lok janúar | |
| Verkefnið Hagvöxtur á heimaslóð (HH) fer af stað á Suðurnesjum í lok mánaðarins. Verkefnið er það sjöunda í röð námskeiða sem haldin hafa verið um nær allt land og sniðin eru að þörfum fyrirtækja og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu. Skráning stendur yfir. | |
| Nánar >> | |
| Könnun lýkur | |
Nú fer hver að verða síðastur að taka þátt í könnun vegna viðskiptasendinefnda og sýninga ársins 2008. Fjölmargir hafa tekið þátt og eru svör enn að berast. Ákveðið hefur verið að gefa fólki tækifæri á að taka þátt í könnuninni í nokkra daga í viðbót og hafa þar með áhrif á verkefnaval ársins 2008. |
|
| Nánar >> | |
| Aldrei fleiri á Eurosonic | |
| Fjórum íslenskum hljómsveitum og tónlistarmönnum hefur verið boðið að koma fram á Eurosonic tónlistarhátíðinni sem fram fer í Groningen í Holland dagana 10.-12. janúar. Þetta eru Bloodgroup, Jakobínarína, Ólafur Arnalds og Mugison. Hátíðin er mikilvæg bæði vegna þess að þarna eru saman komnir bókarar frá öllum helstu tónlistarhátíðum Evrópu | |
| Nánar >> | |
![]() |
|
| Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040 utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér. |
|